13.12.2011 20:31
Uppsveitadeild og fleira
Síðastliðið fimmtudagskvöld var
haldinn kynningarfundur um Uppsveitadeild komandi árs á Kaffi Klett í Reykholti.
Ágætis mæting var á fundinn og skemmtilegar umræður sköpuðust.
Þetta er þriðja árið sem haldin
verður Uppsveitadeild í Reiðhöllinni á Flúðum. 3 félög standa að mótunum;
Smári, Logi og Trausti. Fyrsta árið voru það einungis Smári og Logi sem öttu
kappi en nú síðast bættust Traustamenn við og það verður óbreytt á komandi
keppnistímabili.
Hestamannafélagið Smári er með 4
lið, Logi 2 lið og Trausti 1.
10 stigahæstu knapar halda sæti
sínu eftir árið, hin 11 sætin er skorið úr um með úrtöku eða öðrum úrræðum
innan hvers félags fyrir sig. Hvert lið skipar 3 knöpum sem velur sér liðsstjóra,
hvort sem er innan liðs eða utan.
Árið 2010 átti Smári stigahæsta
liðið og stigahæsta knapann, árið 2011 átti Logi stigahæsta liðið og stigahæsta
knapann, spurning hvað gerist árið 2012 !! Ljóst er að keppnin verður hörð og
ekkert verður gefið eftir.
Nokkrar smávægilegar breytingar
voru gerðar á reglum deildarinnar og munu þær breytingar birtast hér á vefnum
innan skamms.
Ákveðnar voru endanlegar dagsetningar að mótum vetrarins og
eru þær eftirfarandi :
27 janúar SMALI
24 febrúar FJÓRGANGUR
23 mars FIMMGANGUR
20 apríl TÖLT/SKEIÐ
Einnig var dregið í liðin, þó gæti liðsskipan eitthvað riðlast og ekki útséð með að einhverjar breytingar verði en þá munu þær breytingar birtast hér þegar nær dregur fyrsta móti ásamt liðsstjórum liðanna og styrktaraðilum
LIÐ 1
Gunnlaugur Bjarnason
Bjarni Birgisson
Ástrún Sólveig Davíðsson
LIÐ 2
Grímur Sigurðsson
Bryndís Heiða Guðmundsdóttir
Hermann Þór Karlsson
LIÐ 3
Vilmundur Jónsson
Gunnar Jónsson
Einar Logi Sigurgeirsson
LIÐ 4
Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg
Kristbjörg Kristinsdóttir
Guðmann Unnsteinsson
LIÐ 5
María Birna Þórarinsdóttir
Líney Kristinsdóttir
Þórey Helgadóttir
LIÐ 6
Guðrún S. Magnúsdóttir
Sólon Morthens
Knútur Ármann
LIÐ 7
Óskipað þremur Traustafélögum
Einnig kynntu fulltrúar úr æskulýðsnefndum Uppsveitadeild Æskunnar, þar voru einnig gerðar smávægilegar breytingar á reglum sem birtast hér um leið og búið er að yfirfara þær.
Helsta
breytingin sem gerð var á þessari deild var að fyrirkomulagi verður breytt,
krakkarnir munu nú ekki keppa á laugardeginum eftir Uppsveitadeildina heldur
verður mótunum fækkað um 1, byrjað seinna og fleiri greinar teknar á sama móti.
Einnig var gerð sú breyting að nú verður leyfilegt að notast við sama hestinn í
báðum deildum sem ekki mátti á síðasta keppnistímabili. Ef þessar breytingar
munu ekki ganga verður þetta fyrirkomulag endurskoðað í lok tímabils. Að lokum voru
ákveðnar dagsetningar fyrir mót í Uppsveitadeild Æskunnar :
10 mars SMALI
31 mars TÖLT/FJÓRGANGUR
28 apríl ÞRÍGANGUR/FIMMGANGUR/SKEIÐ
Einnig var skemmtileg skipting
milli verðlauna í Uppsveitadeild Æskunnar árið 2011, en það var í fyrsta skipti
sem þessi mótaröð var haldin, að henni standa einnig hestamannafélögin 3,
Smári, Logi og Trausti. Ekki eru föst lið í þessari deild, heldur keppt milli
félaga og hver á einn er ekki bundinn við að vera með á öllum mótunum.
Stigakeppnin var ekki síður spennandi hér en hjá fullorðna fólkinu, Logi átti
stigahæsta knapann í barnaflokki, Smári átti stigahæsta knapann í unglingaflokki
en þegar tekin voru samanlögð stig í barna og unglingaflokki var Smári nokkrum
stigum ofar og vann liðabikarinn.
Æskulýðsnefndir félaganna munu að
mestu leiti sjá um framkvæmd mótanna, mikill uppgangur er í æskulýðsstörfum í
félögunum, þar er unnið frábært starf og ljóst er að þessi deild er komin til
að vera.
Í framhaldi af þessu má minnast á að nokkur mynd er að komast á dagskrá vetrarins, vetrarmótin munu verða á sínum stað og stefnt er að þessum dagsetningum
1 vetrarmót 18 febrúar
2 vetrarmót 17 mars
3 vetrarmót 14 apríl
Fyrirhugað er að halda
járningnáskeið í janúar, sölusýningu, námskeið/erindi og sitthvað fleira. Allt
verður þetta auglýst betur þegar nær dregur og sett inn í linkinn hér til
hliðar TÍMATAFLA OG DAGSKRÁ 2011-2012. Fólk er því hvatt til að fylgjast vel
með.
Aðalfundur Smára verður haldinn 2
febrúar og að sjálfsögðu eru allir félagsmenn hvattir til að mæta, Reiðmaðurinn er í fullum gangi í Reiðhöllinni
og verður áfram eftir áramót, firmakeppni 1 maí og svona mætti lengi telja.
Það verður því nóg um að vera á
komandi landsmótsári, stefnt er að því að halda úrtöku sameiginlega með öðrum
félögum á Gaddstaðaflötum, líklegast 2-3 júní.
Gæðingamótið verður síðan aftur á
sínum stað, þriðju helgina í júlí eða 21 júlí.
Ef einhverjar spurningar vakna
við þennan lestur, eða fólk vill koma athugasemdum á framfæri getur sá hinn
sami sent línu á smari@smari.is
