04.08.2011 20:41
Íþróttakeppni aflýst
Við viljum minna á að gæðingamót Smára verður haldið í Torfdal 20 ágúst og nánar auglýst síðar.
Stjórnin
29.07.2011 10:55
Íþróttakeppni Smára
Íþróttakeppni Smára
Íþróttakeppni verður haldin á velli félagsins í Torfdal 6 ágúst n.k. Keppni hefst kl 13 Keppt verður í tölti ,fjórgang og fimmgang. Flokkaskipting verður 16 ára og yngri og svo 17 ára og eldri. Skráningargjald verður 2,500 kr fyrir hverja grein og greiðist inná reikn 325-26-39003 kt:431088-1509. Staðfestið greiðslu með kvittun við skráningu.
Skráning sendist á hreppholar@gmail.com og skal þeim lokið fyrir kl 20 miðvikudaginn 3 ágúst. Keppnin verður felld niður ef ekki verða nægar skráningar og verður það auglýst á www.smari.is
Nefndin
09.07.2011 11:28
Barna- og fjölskyldureiðtúr Smára 2011
þriðjudaginn 26.júlí
Við ætlum að hittast á Álfaskeiði kl. 19:00
Þar verður öllum boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti
Farið verður í leiki og markmiðið að eiga góða kvöldstund saman
í fallegu umhverfi
Vinsamlegast látið vita af þátttöku hjá Maju s:8679572 eða Leifi s:8970969 fyrir sunnudagskvöldið, 24.júlí
Upplagt er að fólk tali sig saman um að vera samferða úr sveitunum.
Farið verður ríðandi frá Sandlækjarholti kl.18:15 og
frá Reiðhöllinni á Flúðum kl.18:00
Allir velkomnir - hlökkum til að sjá ykkur
bestu kveðjur, Einar Logi, Vigdís, Maja, Leifur og Kolbrún
04.07.2011 13:35
Íslandsmót fullorðinna 2011
Skráningar
Skráningar sendist á brunir@simnet.is Skráningum skal lokið á miðnætti 6. jjúlí.
Skráningargjaldið er 5000 kr fyrir hverja grein.
Greiða skal skráningargjald inná reikning 325-26-39003 Kt 431088-1509.
Senda skal kvittun fyrir greiðslu á smari@smari.is
Skráning verður ekki tekin gild nema kvittun hafi borist og einnig að félagsgjöld í Smára hafi verið greidd.
Komi upp spurningar varðandi þetta hafið þá samband við mig í S:8561136
Með kveðju
Guðni Árnason formaður
15.06.2011 23:01
Frá útreiðanefnd
Ný tímasetning nánar auglýst síðar.
Lagt verður af stað frá Reiðhöllinni kl 14.00
Farið verður yfir nýju brúna og borðað á Kaffi-Klett
Kosnaður vegna matar verður c.a. 1500-2000 kr.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Sigrúnar í síma 864-5213 eða
Ragnheiðar í síma 845-5213
09.06.2011 10:21
Dagsskrá úrtöku á Hellu
Takið vel eftir að fyrri umferð úrtökumóts Geysis, Loga, Smára og Trausta hefst stundvíslega kl 11:30 laugardaginn 11.júní og seinni umferð verður sunnudaginn 12.júní. Tölt keppnin verður einnig seinnipart sunnudags 12.júní.
Dagskrá laugardagsins 11.júní fyrri umferð
kl 11:30 Ungmennaflokkur
kl 13:30 Matur
kl 14:00 Unglingaflokkur og Barnaflokkur
kl 17:00 Kaffi
kl 17:30 B-flokkur
kl 20:30 Matur
kl 21:00 A-flokkur
Dagskrá sunnudagsins 12.júní
Seinni umferð, nánari tímasetning fer eftir skráningu en umferðin verður búin áður en töltkeppnin hefst.
kl 16:00 Tölt keppni
Miðaverð á úrtöku er 1000 kr, frítt fyrir knapa og börn yngri en 12 ára
Mótanefnd Geysis
27.05.2011 21:33
Úrtaka á Gaddstaðaflötum við Hellu
Úrtaka á Gaddstaðaflötum við Hellu
Úrtakan fer fram um Hvítasunnuhelgina 11 - 13 júní 2011. Umferðirnar verða 2 eins og hefur verið fyrir undanfarin landsmót. Þar sem þetta lendir á Hvítasunnunni þá verður fyrri umferð laugardaginn 11.júní og hefst hún líklega kl 12:00 þar sem yfirlitsýning kynbótahrossa verður um morguninn, ef svo vill til að þátttakendur verða mikið yfir 100 í heildina gæti þurft að endurskoða tímasetningar, seinni umferð verður svo mánudaginn 13.júní. Þetta er gert til þess að ekki þurfi að vera með keppni á Hvítasunnudaginn sjálfan.
Ef hestar vilja fara seinni umferð þá er bara skráð í hana á laugardeginum og lýkur skráningu í seinni umferð 2.klst eftir að fyrri umferð lýkur.
Skráningargjald er 4000 kr á umferð.
Skráningar sendist á brunir@simnet.is Skráningum skal lokið á miðnætti 6 júní.
Greiða skal skráningargjald inná reikning 325-26-39003 Kt 431088-1509.
Senda skal kvittun fyrir greiðslu á smari@smari.is
Skráning verður ekki tekin gild nema kvittun hafi borist og einnig að félagsgjöld í Smára hafi verið greidd.
Komi upp spurningar varðandi þetta hafið þá samband við mig í S:8561136
Með kveðju
Guðni Árnason formaður
22.05.2011 13:54
Frá Útreiðanefnd
Farið verður frá Syðra-Langholti og riðið norður Hvítárbakka og þaðan á Flúðir og ef til vill stoppað á Grund til að nærast.
Endilega takið daginn frá og eru allir velkomnir.
Nánar auglýst síðar
Nánari upplýsingar ef einhver vill gefa nefndarmennirnir Grímur í Ásatúni og Unnsteinn í Langholtskoti
