04.08.2009 16:57

Stórmót á Hellu

Hestamannafélagið Smári hefur rétt til að senda einn fulltrúa í hvern flokk í opna gæðingakeppni sem fram fer á Hellu dagana 13-16 ágúst.
Dagskrá liggur ekki endanlega fyrir en fullyrt er að þessi keppni stangist ekki á við tímasetningar á gæðingamótinu okkar sem fram fer laugardaginn 15 ágúst.
Gaman væri að senda fulltrúa frá félaginu til að taka þátt í þessu stóra  og mikla móti og því eru þeir sem hafa áhuga eða geta bent á einhvern fulltrúa í alla flokka ( barna, unglinga og ungmennaflokk og a og b flokk) beðnir um að hafa samband við Guðmann í síma 8990772 eða senda línu á netfangið smari@smari.is fyrir næstkomandi fimmtudagskvöld, 6 ágúst.

Fyrirvarinn er stuttur svo ekki gefst kostur á að senda út dreifibréf svo endilega þið sem lesið þetta látið þetta berast um sveitirnar og til þeirra félaga sem þið hittið eða heyrið í.

Flettingar í dag: 186
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 663
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 420274
Samtals gestir: 82475
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 14:32:00