Fréttir
15.8.2009
Úrslit Gæðingamót 2009
Gæðingamót Smára 2009 var haldið á Flúðum laugardaginn 15 ágúst á glæsilegum nýjum velli félagsins. Mikil uppbygging er á svæðinu sem verður til fyrirmyndar þegar framkvæmdum og frágangi verður lokið og hestamannafélagin til mikils sóma.
Góð skráning var á mótið og hestakostur góður.
Viljum við byrja á að þakka sérstaklega öllum þeim sem lögðu okkur lið við framkvæmd mótsins, frábært starfsfólk og allir þeir sem að mótinu komu eiga hrós skilið.
Efsti hestur í B flokki hlaut í verðlaun folatoll undir 1. verðlauna hestinn Hróa frá Skeiðháholti sem er undan þeim Hrynjanda frá Hrepphólum og Brúðu frá Gullberastöðum, Efsti hestur í A flokki hlaut í verðlaun folatoll undir. 1. verðlauna hestinn Stíganda frá Stóra-Hofi sem er undan þeim Aron frá Strandarhöfði og Hnotu frá Stóra-Hofi og Efsti hestur í tölti hlaut í verðlaun folatoll undir 1. verðlauna hestinn Mjölni frá Hlemmiskeiði 3 sem er undan þeim Krák frá Blesastöðum 1A og Bliku frá Nýjabæ. Þökkum við eigendum þessara hesta alveg sérstaklega fyrir.
Í dag var einnig veittur sérstakur afreksbikar Smára sem hlotið hefur nafngiftina Blæsbikarinn. Bikarinn er gefinn af Katrínu Jónsdóttur, Langholtskoti til minningar um Hermann Sigurðsson bónda í Langholtskoti og afrekshestinn Blæ frá Langholtskoti. Er hann veittur þeim sem þykir skara framúr í afrekum fyrir hönd Smára og þennan glæsilega bikar hlaut fyrir árið 2008 Birna Káradóttir og óskum við henni innilega til hamingju.
Hér meðfylgjandi eru úrslit mótsins
Barnaflokkur
1. Björgvin Ólafsson og Skuggi frá Hrepphólum 8,13
2. Ragnhildur S. Eyþórsdóttir og Glói frá Hömrum II 7,97
3. Helgi Valdimar Sigurðsson og Ósk frá Skollagróf 7,86
4. Gunnhildur Guðmundsdóttir og Hugur frá Efri Þverá 7,76
5. Vilborg Eva Guðmundsdóttir og Blíða frá Kjarnholtum II 6,38
Björgvin Ólafsson hlaut ásetuverðlaunin í barnaflokki
Unglingaflokkur
1. Sigurbjörg Bára Björnsdóttir og Blossi frá Vorsabæ II 8,31
2. Gunnlaugur Bjarnason og Tvistur frá Reykholti 8,27
3. Bryndís Heiða Guðmundsdóttir og Blær frá Vestra-Geldingaholti 8,01
4. Guðjón Örn Sigurðsson og Kenning frá Skollagróf 7,87
5. Sóley Þórsdóttir og Gustur frá Vestra-Geldingaholti 7,53
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir hlaut ásetuverðlaunin í unglingaflokki
Ungmennaflokkur
1. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Þokki frá Þjóðólfshaga 8,14
B Flokkur
1. Guðmann Unnsteinsson og Árborg frá Miðey 8,44
2. Cora Claas og Andi frá Ósabakka 2 8,37
3. Gústaf Loftsson og Aðall frá Flagbjarnarholti 8,25
4. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Agni frá Blesastöðum 1A 8,14
(knapi í forkeppni var Cora Claas)
5. Hjálmar Gunnarsson og Vígaskjóni frá Flögu 8,05
(knapi í forkeppni var Guðmann Unnsteinsson)
A Flokkur
1. Bjarni Birgisson og Stormur frá Reykholti 8,21
2. Guðmann Unnsteinsson og Stæll frá Efri-Þverá 8,21
3. Gústaf Loftsson og Snikkur frá Eyvindarmúla 8,17
4. Cora Claas og Þytur frá Syðra-Fjalli I 8,02
5. Hermann Þór Karlsson og Þota frá Húsatóftum 7,63
Tölt
B úrslit
1. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Þokki frá Þjóðólfshaga 1 6,67
2. Smári Adolfsson og Máni frá Fremri-Hvestu 6,17
3. Vilmundur Jónsson og Bríet frá Skeiðháholti 5,94
4. Jón Kristinn Hafsteinsson og Styrmir frá Reykjavík 5,93
5. Gunnlaugur Bjarnason og Tvistur frá Reykholti 5,89
A úrslit
1. Guðmann Unnsteinsson og Árborg frá Miðey 6,78
2. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Þokki frá Þjóðólfshaga 1 6,67
3. Cora Claas og Andi frá Ósabakka 2 6,67
4. Höskuldur Ragnarsson og Örk frá Kárastöðum 6,61
5. Hannes Sigurjónsson og Linda frá Feti 6,06
6. Magnús Magnússon og Glæsir frá Ásatúni 5,89
