26.11.2009 22:33

Sýnikennsla með Antoni Páli Níelssyni

Anton Páll með sýnikennslu í Flúðahöllinni.

-í samstarfi við hestamannafélagið  Loga.

Anton Páll Níelsson, einn af okkar fremstu þjálfurum og reiðkennurum, verður með sýnikennslu í reiðhöllinni á Flúðum miðvikudagskvöldið 2. des n.k. kl:20:00.

 Anton mun fara yfir ýmis grundvallaratriði í þjálfun og koma með hugmyndir að framhaldsþjálfun mismunandi hestgerða.


Anton hefur margra ára reynslu í þjálfun og kennslu og var m.a. einn af þjálfurum íslenska landsliðsins á Heimsmeistaramótinu í Sviss sl. sumar, og starfar nú sem yfirþjálfari á hrossaræktarbúinu FETI.


Miðaverði er stillt í hófi, aðeins kr.1000 !!

Sunnlendingar! Notum nú tækifærið til að koma saman, skoða nýja og glæsilega reiðhöll á Flúðum, hitta hestamenn, fræðast og fá hugmyndir um komandi vetrarþjálfun.

Allir hjartanlega velkomnir!!


Stjórn Loga.

Flettingar í dag: 183
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 663
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 420271
Samtals gestir: 82474
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 14:10:12