10.02.2010 23:06
Fréttir af félagsmönnum
Í dag miðvikurdag 10. febrúar var unnið
að gerð nýs
200 m. hringvallar í Langholtskoti í Hrunamannahreppi.
Það er framkvæmdahugur í þeim feðgum
Unnsteini
Hermannssyni og syni hans Guðmanni sem rekur tamninga og þjálfunarstöð
þar á bæ
allt árið. Það voru menn frá verktakafyritækinu Fögrusteinar e.h.f. sem
óku efni
í völlinn.
Þegar búið að jafna úr efninu sem sett var á hringinn biðu þeir ekki boðanna Guðmann og aðstoðarmaður hanns Hjálmar Gunnarsson að sýna gæðingunum Prins frá Langholtskoti og Stæl frá Efri- Þverá völlinn og var þá meðfylgjandi mynd tekin.
Unnið verður að frágangi vallarinns á vordögum en mikil vinna er við gerð svona vallar eins og flestum hestamönnum er kunnugt.
Hermann Sigurðsson faðir og afi þeirra feðga í Langholtskoti var annálaður hestamaður og átti m.a. þau Golu og son hennar Blæ en sá gæðingur stóð tvisvar efstur alhliða gæðinga og einu sinni í öðru sæti á landsmótum. Enginn gleymir þeim stólpagrip sem sá hann.
Margt ágætra hrossa er enn í
Langholtskoti og fjöldi
hrossa á járnum.
Pistill og Ljósmynd : Sigurður Sigmundsson

Þegar búið að jafna úr efninu sem sett var á hringinn biðu þeir ekki boðanna Guðmann og aðstoðarmaður hanns Hjálmar Gunnarsson að sýna gæðingunum Prins frá Langholtskoti og Stæl frá Efri- Þverá völlinn og var þá meðfylgjandi mynd tekin.
Unnið verður að frágangi vallarinns á vordögum en mikil vinna er við gerð svona vallar eins og flestum hestamönnum er kunnugt.
Hermann Sigurðsson faðir og afi þeirra feðga í Langholtskoti var annálaður hestamaður og átti m.a. þau Golu og son hennar Blæ en sá gæðingur stóð tvisvar efstur alhliða gæðinga og einu sinni í öðru sæti á landsmótum. Enginn gleymir þeim stólpagrip sem sá hann.
Pistill og Ljósmynd : Sigurður Sigmundsson
Skrifað af Bára
Flettingar í dag: 183
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 663
Gestir í gær: 102
Samtals flettingar: 420271
Samtals gestir: 82474
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 14:10:12
