Fréttir

26.2.2010

Frá Aðalfundi

Aðalfundur Smára var haldinn í Félagsheimilinu á Flúðum 11 febrúar síðastliðinn. 


Ekki er hægt að segja að fundurinn hafi verið fjölmennur en góðmennt var þó að vanda og úr varð hinn ágætasti fundur.
Venjuleg aðalfundarstörf einkenndu fundinn, reikningar voru lagðir fram og samþykktir samhljóða sem og skýrsla formanns.

Ræktunarbikarinn var afhentur fyrir hæst dæmda kynbótahross í eigu félagsmanns, að þessu sinni var það stóðhesturinn Tenór frá Túnsbergi í eigu Gunnars og Möggu í Túnsbergi.



Hér taka þau við bikarnum af Guðna Árnasyni formanni Smára


Sveinsmerki Smára var afhent þeim er þótti sýna hvað prúðmannlegustu framkomu og snyrtilega reiðmennsku á Gæðingamóti Smára 2009.
Sveinsmerkið að þessu sinni hlaut Guðmann Unnsteinsson frá Langholtskoti.


Hér tekur hann við sveinsmerkinu af Guðna Árnasyni formanni Smára


Kjósa þurfti um 3 aðalmenn í stjórn. Guðna Árnason, Báru Másdóttur og Helga Kjartansson. Guðni og Bára buðu sig fram aftur og var því fagnað með lófataki. Helgi Kjartansson bauð sig ekki fram aftur og inn í stjórn var kosin Cora Claas.
Cora er útskrifaður tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hún hefur verið mjög virk í félagsstarfinu okkar og verið áberandi á mótum félagsins sem og öðrum mótum þar sem hún hefur keppt í nafni félagsins.  Bjóðum við hana velkomna og efumst ekki um að hún komi með ferskar og nýjar áherslur inn í starfið.


Cora Claas og Agni frá Blesastöðum 1a

Kjósa þurfti um 2 menn í varastjórn og að þessu sinni hlutu flest atkvæði Hólmfríður Björnsdóttir Blesastöðum og Kolbrún Haraldsdóttir Flúðum flest atkvæði.

Skoðunarmenn reikningna verða þeir sömu, Árni Svavarsson og Þorgeir Vigfússon. Varamenn í þessu embætti eru Haraldur Sveinsson og Haukur Haraldsson.

Fram var lögð tillaga að nefndarskipan 2010 sem má finna hér til hliðar undir liðnum Stjórnir og nefndir. Að gefnu tilefni skal taka það fram að þetta er einungis tillaga af hálfu stjórnar. Engum er skylt að starfa hafi hann ekki áhuga eða sjái sér ekki fært að taka þátt í störfum viðkomandi nefndar. Ef svo er er upplagt að viðkomandi snúi sér til næsta stjórnarmanns og segji sig frá starfinu, einnig er hægt að senda tölvupóst á smari@smari.is best væri ef það yrði gert sem fyrst svo hægt sé að fá staðgengil inn í viðkomandi nefnd.


Skrifað 26.2.2010 kl. 11:19 af Bára

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 115
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 273
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 166636
Samtals gestir: 26922
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 10:28:27