Fréttir

27.2.2010

Uppsveitadeild Fjórgangur-úrslit

Í kvöld fór fram keppni í fjórgangi í Uppsveitadeildinni. 18 knapar voru mættir til leiks og réðust úrslitin ekki fyrr en í bráðabana í A úrslitum. Margt var um manninn í Reiðhöllinni og var ekki að sjá annað en áhorfendur skemmtu sér hið besta. Cora Claas sigraði B-úrslitin á Agna frá Blesastöðum 1a og að loknum bráðabana fóru leikar þannig að Aðalheiður Einarsdóttir á Blöndal frá Skagaströnd sigraði Hermann Þór Karlsson og Prins frá Ytri-Bægisá II.

Meðfylgjandi eru úrslit kvöldsins og staðan í stigakeppninni, eins og sjá má er mjótt á munum og ekkert útséð hvernig endanleg úrslit fara svo það er eins gott að missa ekki af næstu keppni sem fram fer í Reiðhöllinni 26 mars næstkomandi. Þá verður keppt í fimmgangi  og ljóst er að ekkert verður gefið eftir.

Dómarar kvöldsins voru þeir Sævar Örn Sigurvinsson, Hallgrímur Birkisson og Karl Áki Sigurðsson. Þulur var Óðinn Örn Jóhannsson. Er þeim þakkað fyrir vel unnin störf sem og öllum sem komu að undirbúning og vinnu við framkvæmd kvöldsins.



  Sæti

   Keppandi

   Heildareinkunn

1

   Aðalheiður Einarsdóttir   / Blöndal frá Skagaströnd

6,63

2

   Hermann Þór Karlsson   / Prins frá Ytri-Bægisá II

6,63

3

   Cora Claas   / Agni frá Blesastöðum 1A (upp úr B-úrslitum)

6,27

4

   Hólmfríður Kristjánsdóttir   / Þokki frá Þjóðólfshaga 1

6,20


5

   Bjarni Birgisson   / Klakkur frá Blesastöðum 2A

5,90

6

   Guðmann Unnsteinsson   / Vígaskjóni frá Flögu

5,33

7

   Líney Kristinsdóttir   / Prins frá Fellskoti

5,20




Hér fyrir ofan má sjá efstu 7 í fjórgangi. Frá hægri : 1.Aðalheiður og Blöndal 2. Hermann og Prins 3.Cora og Agni 4. Hólmfríður og Þokki 5.Bjarni Birgisson 6.Guðmann Unnsteinsson 7. Líney Kristinsdóttir

Fleiri myndir frá kvöldinu má finna undir myndaalbúm hér til hliðar.Ljósmyndari var Sigurður Sigmundsson og þökkum við honum kærlega fyrir.




Einstaklingskeppni-staðan eftir 2 greinar

Sæti

Knapi

Lið

Heildarstig

1

Aðalheiður Einarsdóttir

Útlagarnir

20

2

Guðmann Unnsteinsson

Ísl.grænmeti/Hótel FLúðir

14

3

Hólmfríður Kristjánsdottir

Vaki

14

4

Bjarni Birgisson

Ármenn

10

5

Guðrún Magnúsdóttir

Jáverk

10

6

Hermann Þór Karlsson

Ármenn

10

7

Cora Claas

Ísl.grænmeti/Hótel FLúðir

8

8

Gústaf Loftsson

Vaki

6

9

Knútur Ármann

Skálholtsstaður

6

10

Líney Kristinsdóttir

Jáverk

6

Liðakeppnin - staðan eftir 2 greinar

Sæti

Lið

Heildarstig

1

Ármenn

23

2

Íslenskt Grænmeti/Hótel FLúðir

22

3-4

Útlagarnir

20

3-4

Vaki

20

5

Jáverk

19

6

Skálholtsstaður

 6

Skrifað 27.2.2010 kl. 0:48 af Bára

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 273
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 166657
Samtals gestir: 26927
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 10:49:48