Fréttir
2.3.2010
Frá formanni
Margt er það sem kemur inná mitt borð sem formaður Hestamannafélagsins Smára, sumt auðleyst og eðlilegt annað frekar skrýtið og torleyst.
Ástæða þessarar greinar er að fyrir skemmstu hringdi til mín kona úr Skagafirði nánar til tekið frá Lauftúni og tjáði mér að félagi í Hestamannafélaginu Smára hefði pantað hjá sér gistingu síðastliðið sumar vegna Landsmóts í Skagafirði. Þar sem langt var í mótið þegar viðkomandi pantaði skráði konan ekki hjá sér allar helstu upplýsingar en mundi eftir nafni félagsins.
Vil ég biðja ykkur sem þetta lesið að láta þetta berast, kannski les sá eða sú sem pantaði gistinguna þetta. Ef viðkomandi sem gerði þessa pöntun les þessa grein vil ég að hann hafi samband við konuna hið allra fyrsta svo ekki komi til þess að hún úthluti gistinguni til annara því stutt er í Landsmót.
Vil einnig minna á að fyrirhugað er að halda töltmót Loga Trausta og Smára í reiðhöllinni á Flúðum þann 13 mars n.k.
Annað sem ég vil minna á að senn verður reiðhöllinni læst þannig að bara þeir sem pantað hafa árskort hafa aðgang.
Með kveðju
Guðni formaður

Flettingar í dag: 100
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 553
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 165683
Samtals gestir: 26751
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 05:58:30