Fréttir
28.4.2010
Knapamerki í Flúðaskóla
Hestamennska er ein vinsælasta íþróttagreinin hér á landi og er í senn
keppnisíþrótt og almenningsíþrótt. Mikill fjöldi stundar hestamennsku
sér til ánægju og lífsfyllingar. Samneyti við hestinn, líkamleg þjálfun
og tengsl við náttúruna er það sem allir hestamenn sækjast eftir.
Viðgangur og vöxtur hestamennskunnar, ekki síður en annarra
íþróttagreina, byggist að miklu leyti á því að miðlun þekkingar og
færni sé markviss. Því er mikilvægt að kennsla í greininni sé vel
skipulögð og aðgengi að henni auðvelt. Með stigskiptu námi í
hestamennsku sem hér er kynnt er stuðlað að bættu aðgengi að fræðslu,
þjálfun og menntun í hestamennsku.
Markmiðið er að kennslan verði faglegri og samræmdari en verið hefur og nemandinn leiddur stig af stigi í takt við getu hans og áhuga. Þar með er lagður grunnur að árangri og öryggi í hestamennskunni hvort sem hún verður stunduð til frístunda eða sem keppnisíþrótt í framtíðinni. Með því að nám barna og ungmenna í hestamennsku er valkostur í skólakerfinu skapast sterkari umgjörð sem stuðlar að markvissum vinnubrögðum við kennslu, námsmat, gerð námgagna og um leið frekari útbreiðslu hestamennskunnar.
Þá mun tilkoma Knapamerkjanna einnig stuðla að því að hinn almenni hestamaður geti með skipulögðum hætti aukið við þekkingu sína með því að sækja námskeið sem eru byggð upp stig af stigi hvað varðar námsþætti, færni og námsmat.
Nú í vetur hefur verið í gangi kennsla í knapamerkjum í hestavali í Flúðaskóla ásamt verklegri kennslu sem fram fór í Reiðhöllinni.
Þann 18 apríl síðastliðin fór svo fram lokapróf í knapamerkjum 1 og 2.
Prófdómari var Sissel Tveten, aðstoðarmaður Verena Schwarz og reiðkennari í vetur hefur verið Cora Claas.
Eftirfarandi krakkar luku prófi eftir veturinn
Alexandra Garðarsdóttir
Björgvin Ólafsson
Björgvin Viðar Jónsson
Guðjón Örn Sigurðsson
Hafdís Ellertsdóttir
Hildur Guðbjörg Benediktsdóttir
Kjartan Helgason
Kristlaug Þórsdóttir
Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir
Sóley Sara Eiríksdóttir
Sólveig Arna Einarsdóttir
Óskum við þeim til hamingju með þennan áfanga og vonum að þau haldi áfram og klári næstu stig knapamerkjanna.
Þeir sem vilja kynna sér nánar um knapamerkin er bent á vefsíðuna knapi.holar.is þar sem finna má allar nánari upplýsingar um knapamerkin

Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 273
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 166657
Samtals gestir: 26927
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 10:49:48