26.08.2010 17:18
Reiðmaðurinn
Eins og flestir kannski vita er að fara af stað í Reiðhöllinni á Flúðum REIÐMAðURINN sem er tveggja ára námsskeiðsröð í samvinnu við Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Set ég því hér inn til glöggvunar þær tímasetningar sem búið er að taka Reiðhöllina frá og er hún því ekki opin fyrir almenna notkun á meðan á þessum tímum stendur og biðjum við félagsmenn að taka tillit til þess.
Þessar dagsetningar má einnig finna hérna til hliðar undir REIÐHÖLLIN og TÍMATAFLA 2010-2011 svo þetta ætti nú ekki að fara framhjá neinum en tímarnir eru eftirfarandi :
Október 2010
1-3 október frá 13.00 á föstudegi til sunnudagskvölds
15-17 október frá 13.00 á föstudegi til sunnudagskvölds
Nóvember 2010
6-7 nóvember frá 13.00 á föstudegi til sunnudagskvölds
Desember 2010
3-5 desember frá 13.00 á föstudegi til sun
nudagskvölds
Janúar 2011
Febrúar 2011
4-6 febrúar frá 13.00 á föstudegi til sunnudagsvkölds
Mars 2011
25-27 mars frá 13.00 á föstudegi til sunnudagskvölds
Apríl 2011
3 apríl frá 16.00
Er þetta í fyrsta sinn sem þetta nám er kennt á Flúðum og gaman verður að fylgjast með framvindu máli í þeim efnum.
Kennari verður Ísleifur Jónasson og óskum við þátttakendum góðs gengis í vetur.
