Skóflustunga fyrir reiðhöll
Á þrettándanum (06.01.2007) tóku fimm heiðursfélagar í Hestamannafélaginu Smára
fyrstu skóflustunguna að reiðhöll sem byggð verður á Lambatanga á
Flúðum. Reiðhöllin sem mun rísa skammt frá Límtrésverksmiðjunni verður
22 x 50 m. að grunnfleti. Gert er ráð fyrir áhorfendabekkjum fyrir um
150 manns, hesthúsi fyrir 10 -12 hross, félagsaðstöðu fyrir
Smárafélaga, snyrtingum ásamt geymslu. Burðarvirkið verður úr Límtré
sem klætt verður svokölluðum yleiningum. Eignarhaldsfélag hefur verið
stofnað um húsið og eru eigendur auk hestamannafélagsins,
sveitarfélögin á þessu svæði, Búnaðar og Hrossaræktarfélög Hrunamanna
ásamt fleirum. Í ávarpi sem Guðni Árnason form. félagsins flutti við
þetta tækifæri sagði hann finna fyrir vakningu hjá félagsmönnum, fólk
er spennt að að sjá húsið rísa sem mun lyfta hestamennsku og hrossarækt
á félagssvæðinu á annað stig en húsið býður uppá fjölmarga möguleika
sem fjölnota menningarhús. Búið er að skipuleggja keppnisvöll ásamt
beinni braut og æfingavelli skammt frá væntanlegri reiðhöll en þær
framkvæmdir muni bíða um sinn. Gröfutækni ehf á Flúðum annast
jarðvinnu, Þorsteinn Loftsson byggingameistari um steypu sökkla og aðra
steypuvinnu.


Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 273
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 166657
Samtals gestir: 26927
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 10:49:48
