Dagskrá Æskulýðsnefndar
Æskulýðsnefnd
Hestamannafélagsins
Smára - febrúar 2010
Dagskrá
æskulýðsnefndar Smára 2010
Sýningin
"Æskan og hesturinn" í Víðidal
Farið verður sunnudaginn 14. mars og hefst sýningin kl. 13:00
Farið verður með rútu sem leggur af stað frá Flúðum kl. 10:30
með viðkomu á Sandlækjarholti og Brautarholti. Á heimleiðinni
verður snædd pizza og heimkoma áætluð milli 17:00 og 18:00.
Skráning í ferðina er hjá Kolbrúnu s: 6995178 / 5668595 og Maju s: 8679572 fyrir 7. mars. Kostnaður er 2,000.-
Reiðnámskeið
Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga hefst þriðjudaginn 16.mars
og verður alla þriðjudaga til 13.apríl (5 skipti, 1x í viku).
Námsskeiðsgjald:
3,000.-
Kennari verður Cora Claas reiðkennari.
Námskeiðið er
uppbyggilegt fyrir framtíðarknapana okkar og ætlað börnum,
unglingum og ungmennum. Það miðar að því að
bæta samspil knapa og hests. Getuskiptir hópar og boðið verður
uppá pollahóp þar sem yngstu knaparnir geta komið í fylgd með
fullorðnum.
Upplýsingar og skráning er hjá Leifi s: 8970969 ls@btnet.is og hjá Vigdísi s: 8616652/ 4866512 sydralangholt@emax.is. Skráning dagana 3.-10.
mars milli kl. 20:00 og 22:00.
Hestheimaferð
verður dagana 8. - 9. maí
Farið verður með hesta á laugardagsmorgni og dvalið í Hestheimum
við leiki og störf fram á sunnudag. Ferðin verður með svipuðu
sniði og áður. Aldurstakmark: Börn fædd 2000 og fyrr. Þessi viðburður
verður auglýstur nánar þegar nær dregur en við hvetjum krakkana
til að taka helgina frá J
Síðan er fyrirhugað að fara í fjölskyldureiðtúr í sumar,
halda æskulýðsdag í ágúst og uppskeruhátíð í haust. Síðan
er aldrei að vita nema við tökum uppá einhverju fleiru okkur öllum
til gagns og skemmtunar J
Nánari upplýsingar um einstaka atburði verður að
finna á heimasíðu hestamannafélagsins,
smari.is
Við hlökkum til að vinna með ykkur að þessum skemmtilegu verkefnum
sem framundan eru J
Kveðja, Kolbrún, Maja, Einar Logi, Vigdís og Leifur
